Blogg lagt niður

ég hef ákveðið að hætta að blogga hér og er nú bara að blogga með vinkonum mínum á www.blog.central.is/thepenis kannski ákveð ég einhvern tíman að blogga on my own aftur en það verður þá gefið upp síðar hvar..

we had our good times,

Bless


Jæja..

Ojojoj skólinn byrjaður á ný! Skrítið að vera að takast á við síðasta árið.. svo er það bara bæbæ Verzló og halló útskriftarferð! Hlakka alveg strax til! - Kiddi þú kemur!! Annars verð ég alla ferðina að hugga Olgu! hehe!

Annars er margt annað að gerast.. mikið um afmæli á þessum tíma! Allir að halda afmælið sitt sem áttu afmæli í sumar og svo eru víst bara líka margir sem gera það um jólin! Glottandi Ég hélt meðal annars upp á afmælið mitt með Olgu polgu í gær en við áttum báðar afmæli í sumar. Héldum alveg frábærlega vel heppnað matarboð, með brushette, kjúklingabringur og brownies með karamellu og margt fleira! Það voru ósköp fáir og þetta var bara alveg yndislega notalegt! Við enduðum þó kvöldið á því að hræða líftóruna úr hvor annari með draugasögum.. Hissa 

Svo í kvöld er planið að fara í matarboð.. verður príma gott þar sem gestgjafinn er kokkur! Svo erum við (ég og Árni) að fara á einhverja opnunarhátið fyrir vefsíðu ungra sjálfstæðismanna.. újee.. talking about fun sko!Ullandi En já, við endum svo á því að fara í afmæli hjá einhverri stelpu í Verzló sem var með Árna í bekk. Vakna svo hress á morgun og fer heim til Olgu að taka til eftir matarboðið!! við rusluðum sko big time til!Óákveðinn Svo kemur nú Helga seinna okkur til bjargar með KFC í för með sér!!

Ég og Árni eigum 4 ára afmæli miðvikudaginn! Spáiði í því! 4 ár!! við erum 2 árum yngri en litla smágelgju systir mín! (sem var að byrja í skóla btw og er ótrúlega svöl núnaKoss - krúttípútt!) en já pointið með þessari samlíkingu er farið úr hausnum á mér núna en látum þetta nú samt standa..

Systir mín, sú stóra, sem er nú líka ógurlega mikil pæja á svo afmæli á fimmtudaginn, í tilefni af því fer mamma og amma út til hennar á miðvikudaginn og ætla að vera framyfir helgi held ég! En já bara til hamingju Silla mín! heyri nú í þér á fimmtudaginn aðeins!!

Ætla að enda þessa færslu með mynd úr sumarfríinu mínu, en það var þegar ég fór á reðursafnið í Húsavík og sá þetta "fjallmyndarlega" fílatyppi:


Fílatyppi

Sumarfrí og micran mín!

Jæja þá er maður komin úr smá sumarfríi. Það var alveg yndislegt! ég fór með Árnanum mínum í Ásbirgi í tvær nætur, svo gistum við með fjölskyldu hans á Húsavík og svo loks vorum við í tvær nætur í Þórshöfn á ættarmóti. Fengum gott veður og slæmt í bland. Ferðin í stuttu máli einkenndist af:

  • Flugusjálfsmorðum á bílrúðuna.. nokkrar safaríkar meira að segja
  • Heimskir fuglar að LABBA yfir þjóðveginn og fljúga á bílrúðuna
  • Góðum grillmat að hætti Árna
  • Fallegum landslagsmyndum
  • Krömdum systrum út um bílrúðu
  • Mávum að slást yfir fiski! magnað! sá sem hafði betur gleypti allann fiskinn í einum bita!
  • Ógeðslegum pervert hundum með bóner
  • Heimskum kindum á veginum! (mæli eindregið með myndbandinu á heimasíðu Árna)
  • Sjúklegri nammineyslu
  • Göngu ofreynslu! Árni pískaði mig áfram í Hljóðuklettum!
  • Ógeðslegu hlaupu myndbandi Árna!

Ég held að ég sé ekki að gleyma neinu öðru mikilvægu.. annars kemur það bara seinna.. en þetta var voða mikið tjill og bara gaman!
Svo kom hún Sillan mín heim á laugardaginn og er hún hér enn á landinu og verður fram á miðvikudag svo ég lengdi fríið mitt þangað til að hún er farin. Það er rosa gott að hafa hana heima! Vil sko helst að hún fari ekkert aftur!
Svo var ég að fá blómin á Micruna mína sem ég hafði pantað mér! Mæli með að þið skoðið albúmið með myndum af Micrunni minni!! En svona lítur hún út nú þegar búið er að setja blómin á hana:

 


Sæta litla Micran mín!

NÝR BÍLL!

Huldu bíll

Það eru svo margir að taka sig saman og blogga að ég bara gat ekki annað en smitast!Glottandi Árni karl og Olga Norska voru svo dugleg að skella inn bloggi nefnilega.
Ég hef sko fréttir! Ég var að kaupa mér nýjan bíl, ´97 árgerð af Nissan Micru, 5 dyra, beinskipt og voða vel með farin.. en það besta er að hún er FJÓLUBLÁ!! KossVið erum sko að tala um Huldulegasta bíl í heimi!Hlæjandi Og hún á eftir að verða Huldulegari. Minns er nefnilega dottin svolítið í ebay þessa dagana og ég keypti alskonar dóterí í bílinn.. bleikt áklæði á öll sætin, bleikt utan um stýrið, bleikt utan um beltin og það besta af öllu.. bleik límmiða blóm til að setja utan á bílinn!! Á nokkur eftir að þora að keyra með mér um á þessum bíl??? Ullandi En já.. allt þetta dót á innan við 10.000 kr! Ótrúlega sniðugt þetta ebay! En ég á kannski eftir að segja annað þegar ég fæ þetta sent og þetta er algjört drasl Fýldur!
Ég fór með Árna að bóna bílinn og þrífa hann og gera hann rosa fínan um daginn.. svo ég bíð bara spennt eftir blómunum og dótinu..

Annars hlakka ég rosa til að fara í sumarfrí! HlæjandiÉg fer 19.júlí og byrja á því að fara í Ásbirgi að gista eina nótt með mínum heittelskaða, svo gistum við á húsavík með tengdó og svo gistum við í 2 nætur á ættarmóti hjá Árna familíu. Svo kemur Silla systir heim 21.júlí og verðum við komin heim 22.júlí í móttökupartýið hennar. Ohhh ég hlakka svo til að fá hana heim í smá tíma! það verður bara gaman!Hlæjandi

Jæja ég er hætt í bili elskurnar!!
Huldan


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband