Færsluflokkur: Bull og vittleysa

púl og vinna

Jæja, það er orðið soldið síðan ég bloggaði.. what's new.. ég er að sjáfsögðu bara vinnandi á fullu.. djöööööfull leiðist mér þetta samt! ég ætla svo innilega að gera eitthvað annað næsta sumar.. eeen i'm saving up for my purple micra now! svo ég verð að vinna.
Ég var að byrja á mánudaginn í TT námskeiði hjá Dansræktinni! úff.. þetta er svona megrunar-átaks-leikfimis námskeið sem er í 4 vikur og ég fer í leikfimistíma 3 á viku á þeim tíma, svo er svona aðhaldsfundur einu sinni í viku þar sem maður er skammaður og svona ef maður hefur ekki lést.. Hissa ég fékk líka eitthvað sjúkt matarplan sem ég þarf að fylga eftir.. EKKI auðvelt að sleppa namminu og kókinu.. verð svolítið brjáluð í skapinu.. spyrjið bara Árnan.. ég er næstum því búin að bíta hausinn af greyinu af pirringi á kvöldin þegar ég er að fara að verða nammisjúk.. En já þetta borgar sig, það í miðvikudagur í dag og ég er búin að missa 400 gr! jeeiii! á 2 dögum! næstum því hálft kíló!

hulda sín að worka át

Annars er tilhlökkunin fyrir sumó að sjálfsögðu alveg í hámarki! það verður sko GAAAAMAN!Hlæjandi ohhh ég vona að það verði gooooott verður svo ég geti misþyrmt Árna í að grilla handa mér og búa til mojito handa mér meðan ég ligg í pottinum svona 3 kg léttari Svalur
Bæjú!


Sumó, próf og Ikea

SUMÓ-INN
Jæja.. prófin eru bara komin á fullt.. mér hefur gengið svona lala.. er búið að ganga verst í ritgerðarprófinu hingað til.. ég klúðraði öllu þar sko.. ég strokaði allt út sem ég var búin að skrifa þegar helminginn af tímanum var búin og byrjaði upp á nýtt með nýju ritgerðarefni.. málshátt.. sem ég skildi ekki einu sinni.. flott Hulda.. flott.. Mamma er í Dammörku með saumaklúbbnum og hún ætlar að hitta Sillu líka :( mig langa memm.. :(.. Ég fór með karlinum mínum í gær og keypti kommóðu fyrir litla býlið okkar.. helvítis Ikea.. Ikea lætur mig líta illa út.. ég var að reyna að hjálpa karlinum mínum í gær að setja hana saman en ég kann bara ekki rassgat.. ég misskil teikningarnar fullkomlega.. ég sný öllu öfungt.. hef enga líkamlega krafta til að setja þetta saman.. og já... ég var bara athlægi í gær sko.. eins gott að ég hef Árni til þess að gera þetta.. hehehe... ég get ekki ímyndað mér heimili með Ikea húsgögnum sem ég hef sjálf sett saman.. það yrði eitthvað skrautlegt! SUMÓ! JEEEEII! það er komið eitt sem ég held í sem tilhlökkunarefni svo að prófin líða fljótar.. SUMÓ! ég er að fara í sumó með hluta af penisunum.. því miður ekki Nönu og Heiði.. en það verða ég, Árninn, Olga, Kiddi og Helga og ábyggilega einhver fleiri. Bústaðurinn er í Vaðnesi í Grímsnesi eða eitthvað svoleiðis og we are gonna have a goooood time! Þetta er svona hálfgert kveðju-penis-djamm fyrir Olgu en hún kveður Ísland í 16.júní. Skelli með einni mynd af staðnum. Jæja ég þarf að halda áfram að læra fyrir frönsku - au revoir, mon peu de fruit durcit! Huldan

Ný síða

Sandan og Huldan

Jæja.. ég ákvað nú að reyna að breyta aðeins til og prufa að blogga hérna.. svo má vel vera að ég skipti aftur yfir á blog.central ef þetta er ekki að gera sig ;)

Ég kom heim úr skólanum í dag og þá var pabbi búinn að kaupa tölvu - í afmælisgjöf handa sér! Hann er sko 43 ára í dag gamli karlinn.. en já talvan er rosa flott, hún er frá apple.. svona hvít og svaka töff.. svo ég á nú ábyggilega eftir að blogga meira og vera virkari á netinu núna en áður.. nú þarf ég jú ekki að klifra upp á ris og kveikja á fornaldar tölvunni sem frýs aðra hverja mínútu! JEI! Það tekur samt sinn tíma að læra á þetta apple dæmi.. en þetta kemur..

Árni var að kaupa sér bíl.. rauðan Yaris, 2001 árgerð.. djöfull eru allir að kaupa sér eitthvað stórt núna.. ég er alveg útundan.. :´( ég bara toppa ykkur öll og fer og kaupi mér fitubollu.. ætli Gauji litli sé til sölu?

Þá er bara komin helgi.. ég þarf að vinna :( ætti að vera heima að læra fyrir vorprófin.. ég er ekki búin að vera dugleg.. á mánudaginn er samt síðasti vinnudagurinn og þá er ég komin í mánaðarfrí vegna prófana.

Það var smá djamm á miðvikudaginn hjá systrafélaginu.. Olga var að missa sig og í einhverju öðru en kókinu.. ég held að hún hafi gert mesta skandalinn.. dansaði eins og henni einni er lagið.. misbauð Helgu með some humpin'.. hún var óð.. svo datt ég reyndar líka aftur fyrir mig á kolli.. tölum samt ekki meira um það.

Jæja.. ég held að ég láti þetta nægja sem fyrsta bloggið hér á blog.is

Kveðjan,

Huldan


Fleiri myndir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband